Ekki er allt sem sýnist.
Hallærislegt en satt þá er ég þegar byrjuð að plana jólin.
Mín heitasta ósk er að vera á Íslandi yfir jólin, rölta um á snjóþöktum Laugarveginum, ísköld og vot á táslunum og hugguleg jólaljósin sveima kærlega fyrir ofan þó nokkuð veraldarvana höfuð mitt, allt í einu heyrir maður Hallgrímskirkjujlukkurnar klingja; ding dong ding dong - ding dong ding dong'.
Enn því miður kemst ég ekki heim.
Í staðin verð ég á sama stað og alltaf, Danmörku.
Já það er ekkert hér í Danmörku sem kemur mér allmennilega í jólaskapið, ekkert getur verið endurtekið, eingar endurteknar jólahamingjumynningar, ég neyðist til að halda dönsk jól. Ekkert múður!
Áramótin, kannski einhver möguleiki þar? Ég verð nú að vera í Reykjavík á áramótunum.
Danmörk er staður sem ég hef ekkert með að gera.
En þó, ég er þegar búin að halda tvö jól hér og ég læri á dönsku jólastemninguna smámsaman, en það jafnast bara ekkert á við Íslensk jól.

En ef ég kemst að lokum til íslands þá verður ekki snúið aftur.
Hvaða væl er þetta í mér, Dramatík í hámarki.
En svona er það bara að sakna.
Upp á síðkastið hef ég verið að dunda mér í ræktinni! Dugleg, já, það er komin þessi ágæta líkamsræktarstöð 2.min frá íbúðinni minni(ef farið er á hjóli sko).
Svo er hellingur af houswarmingpartíum í næstu viku, allir bara að leigja og allur nýþénaður peningur minn fer beint í innflutningsgjafir. En annars verður gebbað stuð! Hlakkar í mér.
Mér skilst að hún Sarah hafi boðið c.a 30 manns í 15 fermetra íbúðina sína, er ekki alveg að sjá það fyrir mér en það verður spennandi að sjá.
Segjum kveðjur að þessu sinni á dönsku.
-Farvel min ven.
Kærlig hilsen,
Boogie.