Thursday, November 1, 2007

Hver er versti munurinn á Dk og RVK?

Ekki er allt sem sýnist.

Hallærislegt en satt þá er ég þegar byrjuð að plana jólin.
Mín heitasta ósk er að vera á Íslandi yfir jólin, rölta um á snjóþöktum Laugarveginum, ísköld og vot á táslunum og hugguleg jólaljósin sveima kærlega fyrir ofan þó nokkuð veraldarvana höfuð mitt, allt í einu heyrir maður Hallgrímskirkjujlukkurnar klingja; ding dong ding dong - ding dong ding dong'.

Enn því miður kemst ég ekki heim.
Í staðin verð ég á sama stað og alltaf, Danmörku.
Já það er ekkert hér í Danmörku sem kemur mér allmennilega í jólaskapið, ekkert getur verið endurtekið, eingar endurteknar jólahamingjumynningar, ég neyðist til að halda dönsk jól. Ekkert múður!

Áramótin, kannski einhver möguleiki þar? Ég verð nú að vera í Reykjavík á áramótunum.
Danmörk er staður sem ég hef ekkert með að gera.
En þó, ég er þegar búin að halda tvö jól hér og ég læri á dönsku jólastemninguna smámsaman, en það jafnast bara ekkert á við Íslensk jól.

En ef ég kemst að lokum til íslands þá verður ekki snúið aftur.

Hvaða væl er þetta í mér, Dramatík í hámarki.
En svona er það bara að sakna.

Upp á síðkastið hef ég verið að dunda mér í ræktinni! Dugleg, já, það er komin þessi ágæta líkamsræktarstöð 2.min frá íbúðinni minni(ef farið er á hjóli sko).
Svo er hellingur af houswarmingpartíum í næstu viku, allir bara að leigja og allur nýþénaður peningur minn fer beint í innflutningsgjafir. En annars verður gebbað stuð! Hlakkar í mér.
Mér skilst að hún Sarah hafi boðið c.a 30 manns í 15 fermetra íbúðina sína, er ekki alveg að sjá það fyrir mér en það verður spennandi að sjá.

Segjum kveðjur að þessu sinni á dönsku.

-Farvel min ven.
Kærlig hilsen,
Boogie.

2 comments:

Kristín said...

boogie!
ég sakna lika RVK í desember..
við getum haldið jólin saman á skype og rifjað upp allar góðu minningarnar um snjóinn og laugavegsröltin góðu.

diskó*

ólöf said...

Boogie=( Ég vil jólainnkaupin með ÞÉR. Komdu allavega í smá heimsókn. Fyrir elsku ólöfu þína. OH. Ég sakna þín svo sárt elsku litla krútt. Það var í umræðunni í fjölskyldunni að fara í fjölskylduferð til Danmerkur á næsta ári..þá gæti ég sennilega komið tvisvar það árið! Væri það ekki næs? ég er á því. OH. Eins gott þú komir um áramótin. Mig verkjar af Boggu-leysi. Dugleg í ræktinni=) ég líka hehe..í skólanum..reyni að fara tvisvar í viku..en gengur ekki alltaf upp. OH BOGGA..ég þarf þig heim. Gleymdu innflutningsgjöfum..þau hafa ekkert við þær að gera..komdu bara heim og haltu áfram að vera heima. Ást til þín, endalaus ást til þín og það alltaf.