Hver er það ekki...
Græðgi, forvitni, þörf fyrir að rækta sálina, græðgin í að vita meira, sjá meira heyra meira, læra meira, prufa meira, setja mörk.
1 2 3 4 5 6 7 8 9.
Unglingur með tjáningarþrá.
haha.
Unglingur, rosalega leiðinlegt orð.
Að öðru:
Eitt sem pirrar mig mjög er að ég get ekki sett mig almennilega inn í danska póletík, ég hef ekki allmennilega leifi til að mynda mér skoðun því ég þekki ekki nógu vel til stjórnmálanna hér í Dk og veit ekki hvernig þeim hefur verið hagað áðurfyrr.
Þetta nefni ég því kosningarbaráttan er byrjuð hér, fólk talar ekki um annað.
En annars er gaman að fylgjast með.
Hver veit, kannski ég sæki um ríkisborgararétt þegar ég hef búið hér nógu lengi(þá get ég kosið, júnó).
Talandi um leiðinleg, jafnvel skrítin orð: kosið/að kjósa, mynnir mig á orðið fjós sem er reyndar líka ansi skondið.
Nokkuð mörg óspennandi orð/speki sem ég hef safnað saman hér,
reyni að gera betur næst.
Sorry.
Svona slags spekingsblogg sem ég rita safnast saman oftast eftir orkumiklar helgar, þar að segja er ég finn fyrir þynnku. Á einhvern hátt myndast autt pláss í heilanum mínum sem svo fyllist af hallærislegum pælingum og svo gusa orðin út þegar ég er þunn.
Punktur og Pasta.
Látum þetta gott heita áður en ég verð óstöðvandi.
Ég óska fyrrverandi landsmönnum mínum gott mánudagskvöld.
Og núverandi landsmönnum(dönunum) mínu óska ég einskins tiss og lort.(neiiii djók)

3 comments:
haha þú ert yndisleg. Ég sendi þér mæspeis message..kíktu. Það er samt dramatískt. En jæja, kemur fyrir. Þetta er skemmtilega kjánalegt blogg bogga mín:*
ég bloggaði líka, ekki skemmtilegt blogg-en það er langt. Kys kys min kære
jú Hróarskelda. DEFINATELY elskan!
Post a Comment